- Advertisement -

Bíta fast í hönd þeirra sem fóðruðu þau

Eitt virðist þó augljóst, Palestínumenn eru á fórnaraltarinu.

Kristinn Hrafnsson skrifaði:

Undraskjótt fall Assad stjórnarinnar í Sýrlandi markar þáttaskil en sem fyrr er stóra fréttin hulin um hvað raunverulega gerðist á bak við tjöldin enda var Sýrland staðgönguvettvangur erlendra stríðsafla, aðallega Bandaríkjanna, Ísraels, Tyrklands, Rússlands og Írans. Assad féll eins og lauf í vindi af því og Íran og Rússland hættu að bakka hann upp hernaðarlega. Hesbollah samtökin í Lebanon, studd af Iran, voru líka í henglum eftir árásir Ísraela og höfðu ekkert uppá að bjóða í stuðningi.

Það er auðvellt að segja að farið hafi fé betra en áður en menn fagna of ákaft er rétt að hinkra og sjá hvað kemur í staðinn. Það hefur ekki alltaf reynst vel fyrir almenna borgara að losa þá við harðstjóra. Það hefur heldur ekki gefist vel í sögulegu samhengi að styrkja trúarleg uppreisnaröfl í pólitísku skyni því þau hafa átt til að bíta fast í hönd þeirra sem fóðruðu þau.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Nú hentar það Tyrklandi, Ísrael og Bandaríkjunum að sjá þennan gamla sprota al-Kaida taka völdin í Sýrlandi. Þó að Hayat Tahrir al-Sham (HTS) og leiðtogi samtakana, Abu Mohammed al-Julani, hafi lýst yfir fyrir mörgum árum að þau hafi rofið öll tengsl við al-Kaida ætti að fara varlega að slá því föstu að mildileg stjórn taki við í Sýrlandi.

Líklegt er að þessi hraða atburðarás á liðnum dögum sé eftir forskrift þar sem lykilleikendur utan lands hafa lagt línur. Það kann jafnvel að vera að samningar um átakalok í Úkraínu fléttist þar inn sem og tilvistargrið Írans. Það kemur á daginn síðar hvað hangir á spýtunni.

Eitt virðist þó augljóst, Palestínumenn eru á fórnaraltarinu. Búið ykkur undir áróður þess efnis að í ljósi stöðugleika og heildarhagsmuna verði menn að líta í gegnum fingur sér við þjóðarmorð.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: