Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar:
Frábært viðtal við minn góða félaga Örvar Þór Guðmundsson sem starfar hjá Olíudreifingu. Ég hvet ykkur til að lesa það en trúa ekki áróðrinum í hálaunamönnunum sem fá borgað fyrir að blekkja og þvæla.
Og ég hvet ykkur til að standa með félagsfólki Eflingar, sem ólíkt þvælurunum í Borgartúni, er algjörlega ómissandi í allri verðmætaframleiðslu samfélagsins.
„Það er kannski hægt að komast upp í þessa upphæð sem hann nefnir [893.000 krónur] með því að vinna sig nánast í hel, það er staðreynd, en að slá því fram að þarna sé Efling að berjast fyrir einhvern hálaunahóp karla í íslensku samfélagi er alveg út í hött,“ segir trúnaðarmaðurinn.