Sólveig Anna skrifar:
Vissuði að á Íslandi er ein mesta skattbyrði á láglaunafjölskyldur meðal OECD ríkjanna?
Á sama tíma leikur íslensk auðstétt við hvern sinn fingur, ekki síst vegna þess að hún kemst upp með að borga miklu lægri skatta af sínum fjármagnstekjum en vinnuaflið af sínum launum.
Stéttaskipting og misskiptingin sem af henni leiðir leggja hryllilegar byrðar á veröldina alla og augljóst öllum (nema hinum forhertu) að við verðum í sameiningu að grípa í taumana, ekki seinna en núna. Við getum ekki lengur leyft alþjóðlegri auðstétt að koma formúgum undan í skattaskjól, formúgum sem hægt væri að nota í samneysluna, til að tryggja jöfnuð og til að gera líf venjulegs fólks betra og auðveldara og við getum ekki leyft þeim að komast upp með að veita sjálfum sér skattaafslætti í gegnum sín pólitísku ofur-völd. Við þurfum að standa sameinuð og berjast gegn þessu sjúka óréttlæti.
„Í þriðja lagi leggur Oxfam til að það verði hætt að undirskattleggja ríka einstaklinga og fyrirtæki með því að einfaldlega hækka skatta á þá og koma í veg fyrir skattaundanskot þeirra með sameiginlegum aðgerðum. Það sé hægt með því að ná samkomulagi um nýtt alþjóðlegt regluverk og með því að setja upp nýjar alþjóðlegar stofnanir til að framfylgja því. Með þessu væri í raun verið að endurhanna skattakerfi heimsins í grundvallaratriðum til að gera það réttlátara og hleypa þróunarlöndum að ákvörðunartöku til jafn við ríkari lönd heimsins.“ Ljósmynd: Jason Blackeye.