„Ef Reykjavíkurborg kaupir sér frið er það ávísun á nýja upplausn á vinnumarkaði þar sem kröfur munu ganga á víxl og öllum finnst þeir hafa orðið útundan,“ skrifar fjármálaráðherrann fyrrverandi, Benedikt Jóhannesson og birtir í Mogga dagsins.
Benedikt er stofnandi Viðreisnar og getur þess í hvert sinn sem hann skrifar í Moggann. Það er einmitt i Reykjavík sem Viðreisn hefur náð hvað mestum árangri. Fékk tvo borgarfulltrúar, Þórdísi Lóu Þórhallsdóttur og Pawel Bartoszek, og þeir náðu fádæma árangri þegar þeir reistu við fallinn meirihluta Dags B. Eggertssonar. Hann er forseti borgarstjórnar og hún er formaður borgarráðs. Fengu mjög mikið fyrir lítið.
Benedikt rifjar upp: „Í fyrra lagði ríkisstjórnin mikla áherslu á það hve myndarlega hún hefði komið að samningaborðinu. Niðurstaðan var sú að enginn afgangur er af ríkisfjármálum og skattkerfið er orðið flóknara en áður. Ekki er sýnilegt samband milli ríkisstjórnar og verkalýðshreyfingar.“