„Þetta er Miðflokkurinn í hnotskurn. Nú skal rústa dagskrá þingsins og reyna að veiða atkvæði út á leiðindi,“ segir Inga Sæland, formaður Flokks fólksins.
„Kjósendur eru ekki alveg þar, ég hef meiri trú á skynsemi þeirra en svo. Að tefja fyrir því að þingið samþykki flýtimeðferð á gatnaframkvæmdum hringinn í kringum landið og veiti þúsundum vinnu í Þessu erfiða Covid árferði er með hreinum ólíkindum.“
Síðan birtir Inga þennan lista:
- Í ræðustól: Gunnar Bragi Sveinsson, ræða hófst 15:51
- Anna Kolbrún Árnadóttir, 11. ræða.
- Sigurður Páll Jónsson, 18. ræða.
- Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, 20. ræða.
- Birgir Þórarinsson, 20. ræða.
- Ólafur Ísleifsson, 18. ræða.