- Advertisement -

Barist gegn gegnsæi í verðmyndun sjávarafla

Sigurjón Þórðarson alþingismaður og formaður fjárlaganenfndar Alþingis:

Sigurjón Þórðarson kom að sjávarútvegi í umræðunni um fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar. Sigurjón sagði:

„Þá að raunhæfum möguleikum til að auka útflutningstekjur sjávarútvegsins. Með fullri virðingu fyrir þingmönnum stjórnarandstöðunnar er holur tónn í ræðu þeirra þegar kemur að umræðu um að auka útflutningstekjur úr helstu útflutningsafurð þjóðarinnar. Það snertir einhverja kviku hjá mörgum ef rætt er um að tryggja gagnsæja verðmyndun þannig að þeir sem geta greitt hæsta verðið fyrir fiskinn fái hann til vinnslu úr sameiginlegri auðlind þjóðarinnar.

Í Færeyjum eru til að mynda reglur sem kveða á um að hvert og eitt skip er skyldugt til að setja 30% af botnfisksafla á markað. Þannig er hægt að samhæfa vinnslu og útgerð með sanngjarnari verðlagningu. Við þurfum að líta til þess. Það blasir jafnframt við að hægt væri að stuðla að auknum virðisauka þjóðarinnar með frekari vinnslu sjávarafurða. Það er nauðsynlegt að við reynum að koma því í kring í auknum mæli þannig að fiskurinn sé ekki fluttur til vinnslu erlendis í gámum.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Ef notuð er sama veiðiregla og var í notkun fyrir tíu árum hefði síðasta loðnuvertíð skilað 100.000 tonnum meiri afla á land. Meðalvöxtur þorsks er nánast í öllum árgöngum undir meðaltali sem gefur til kynna að bæta megi verulega í veiðina. Nýlega var upplýst að stór hluti af veiðiheimildum í ufsa er ekki veiddur heldur notaður í einhverjar tegundatilfærslur og brask. Það má leiða líkur að því að þarna verði þjóðin af allt að 10 milljörðum kr. í beinhörðum gjaldeyri. Því er nauðsynlegt að breyta reglum þannig að menn hafi ekki hag af því að veiða ekki fiskinn og nota hann þess vegna í tegundatilfærslu eða eitthvað annað sem er algerlega þvert á hag þjóðarinnar.“

Hér er öll ræða Sigurjóns.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: