Miðflokkurinn sprengir utan af sér hvern fundarsalinn af öðrum þegar farið er um og haldnir opnir fundir um orkupakkann. Miðflokkurinn er í sókn, bætir við sig fylgi. Miðflokkurinn er í meðbyr og hættir því ekki ótilneyddur.
Síðustu daga hefur mátt lesa á milli línanna í skrifum þingmanna að ekki verði staðið við samkomulagið um stutta þingfundi og orkupakkinn verði síðan afgreiddur í byrjun næsta mánaðar.
Anna Kolbrún Árnadóttir skrifar grein í Mogga dagsins. Hún talar skýrar en kollegar hennar hafa gert að undanförnu. Anna Kolbrún fer hingað og þangað í grein sinni en endirinn er allt sem hún hefði þurft að segja:
„Lítið hefur verið gert úr orkupakkanum af þingmönnum ríkisstjórnarinnar en hann er ekki svo lítill og áhrif hans eru víðtæk. Það verður áhugavert að fylgjast með framgangi mála í Noregi og í raun væri eðlilegast að bíða eftir niðurstöðu þar ytra áður en Ísland heldur áfram að meðhöndla málið í þinginu. Það er ekki laust við að ég spyrji mig enn á ný hvers vegna ríkisstjórninni liggur svona mikið á.“
Anna Kolbrún leggur til bið. Það mun verða stef Miðflokksins næstu daga, innan þings og utan.
Uppfært. Björn Leví bendir á að búið sé að semja um ræðutíma og því sé ógerlegt að beita málþófi. Þá er enn meiri óvissa um til hvaða bragðs þingmenn Miðflokksins grípa.