- Advertisement -

Aukin átök í þingflokki Sjálfstæðisflokks

„Vilikettirnir“ í þingflokki Bjarna Benediktssonar. Þau auka á vanda hans og eru skýrasta dæmið um minni ótta þingmanna við Bjarna.
Í efri röð: Áslaug Arna, Hildur Sverrisdóttir, Diljá Mist Einarsdóttir og svo frongi þeirra, Vilhjálmur Árnason.
Í neðri röð: Arnar Þór Jónsson. Bryndís Haraldsdóttir, Ásmundur Friðriksson og svo varaformaður fokksins, Þórdís Kolbrún.

Aðgerðirnar vegna Covid leikur þingflokks Sjálfstæðisflokksins grátt. Ágreiningurinn er mikill. Fréttablaðið sinnir þessu í dag. Rætt er við starfandi þingflokksformann, Vilhjálm Árnason.

„Ég kalla eftir minnisblöðum frá fleirum en sóttvarnarlækni áður en svona ákvarðanir eru teknar. Svo sem frá fólki úr mennta-, velferðar- og efnahagskerfinu og öðru heilbrigðisstarfsfólki,“ segir hann í frétt Fréttablaðsins.

Vilhjálmur boðar að ósáttir þingmenn leggi fram frumvarp sem verður þá ætlað að takmarka áhrif sóttvarnaryfirvalda.

Þú gætir haft áhuga á þessum
Bergþór Ólafsson, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir og Hanna Katrín Friðriksson.
Bergþór hefur líkt sóttkví við varðhald.

Í frétt Fréttablaðsins segir svo: „Meðal þeirra sem vakið hafa máls á þessu í Sjálfstæðisflokknum eru Hildur Sverrisdóttir, Bryndís Haraldsdóttir, Ásmundur Friðriksson, Diljá Mist Einarsdóttir og ráðherrarnir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir. Þá hefur Arnar Þór Jónsson, sem nýlega tók sæti sem varaþingmaður, verið mjög gagnrýninn og kallað eftir afsögn Þórólfs.“

Fréttablaðið nefnir til nokkra stjórnarandstæðinga sem séu sömu skoðunar og ósáttu þingmennirnir í Sjálfstæðisflokki:

„Af öðrum þingmönnum má nefna Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur og Hönnu Katrínu Friðriksson úr Viðreisn. Einnig Bergþór Ólason úr Miðflokki sem líkt hefur sóttkví við varðhald. Í öðrum flokkum hefur hins vegar farið lítið fyrir gagnrýnisröddum.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: