Fréttir

Aukið framboð á áfengi og lýðheilsa ekki það sama, segir Viðskiparáð

By Miðjan

March 06, 2020

„Loks telur ráðið lýðheilsusjónarmið ekki eiga við um það frumvarp sem hér er kynnt enda er vefverslun erlendra nú þegar leyfileg og í fullri starfsemi.“

Þetta segir meðal annars í umsögn Viðskiptaráðs um frumvarp um breytingar á áfengissölu, frumvarp Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur fjármálaráðherra.

Skoðum umsögnina betur:

„Viðskiptaráð hefur komið sjónarmiðum sínum á framfæri um frumvarp til breytinga á áfengislögum. Frumvarpið felur í sér að dregið verður úr einokun Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins á smásölu áfengis til neytenda. Viðskiptaráð telur frumvarpið vera skref í rétta átt en að ganga þurfi mun lengra og afnema að fullu einokunarverslun ríkisins á smásölu með áfengi.

„Afleiðingin á slíkri einokun er sú að kraftar samkeppni leiða ekki til aukinnar hagkvæmni í rekstri líkt og raunin hefur verið í vefverslun með aðrar vörutegundir. Loks telur ráðið lýðheilsusjónarmið ekki eiga við um það frumvarp sem hér er kynnt enda er vefverslun erlendra nú þegar leyfileg og í fullri starfsemi. Því má fyrst og fremst búast við að selt magn flytjist frá erlendri verslun til innlendrar verslunar án þess þó að það aukist svo nokkru nemi.

Lesa umsögn í heild sinni.