Forstjóranum Boga Nils virðist ekkert muna um 17 milljónir.
Katrín Baldursdóttir skrifar:
Mikið rosalega eiga stjórnendur Icelandair mikið af peningum! Þetta lið níðist á starfsfólkinu meðan það fyllir á eigin peningakistur! Forstjóranum Boga Nils virðist ekkert muna um 17 milljónir í gegnum félag sem hann á. Á RUV stendur: „Félag Boga Nils Bogasonar, Möskvi ehf. kaupir fyrir 17,5 milljónir.“ Og: „Félag stjórnarformannsins Úlfars Steindórssonar, Jú ehf., kaupir fyrir fimm milljónir.“ Já auðvaldið stendur saman og á peninga til þess.