Nú, rétt eftir mannskæðasta bruna síðari ára á Íslandi, á svo að færa lykilstofnun á sviði brunavarna norður á Sauðárkrók í einhverjum kjördæmapotsleik fyrir félagsmálaráðherra.
Jóhann Páll Jóhannsson skrifar:
Tvær vikur frá Bræðraborgarstígsbrunanum. Ríkisstjórnin hefur ekki fjallað um atburðina og ekkert bólar á því að loforð sem stjórnvöld gáfu við gerð lífskjarasamninga, um refsiákvæði vegna kjarasamningsbrota og félagslegra undirboða, séu efnd. Áfram skal hins vegar siga lögreglunni á veikt fólk vegna fíkniefnaneyslu og stunda racial profiling á erlendu verkafólki. Nú, rétt eftir mannskæðasta bruna síðari ára á Íslandi, á svo að færa lykilstofnun á sviði brunavarna norður á Sauðárkrók í einhverjum kjördæmapotsleik fyrir félagsmálaráðherra. Við getum ekki haft þetta svona áfram, það er alltof mikið í húfi. Skipuleggjum okkur, skorum á gott fólk að gefa kost á sér til stjórnmálaþátttöku, tökum þátt í starfi verkalýðsfélaga, göngum í stjórnmálaflokka, mótmælum, leggjum til lausnir. Rúmt ár til kosninga, vonandi minna. Þurfum nýja ríkisstjórn sem sýnir, bæði með orðum og aðgerðum, að henni sé ekki sama um fólk.