Nú hefur komið á daginn að undanþáguheimild í hjúskaparlögum sem heimilaði að einstaklingur yngri en átján ára megi gifta sig með sérstöku leyfi frá frá dómsmálaráðuneytinu, hefur nú verið afnumin með samþykktu frumvarpi dómsmálaráðherra, Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur.
Því er ljóst að ráðuneytið hefur ekki lengur lagaheimild til að veita börnum leyfi til að ganga í hjúskap.
Fram kemur á vef Stjórnarráðsins að markmiðið með þessari breytingu sé að samræma hjúskaparlögin með alþjóðlegum tilmælum og viðhorfum varðandi lágmarksaldur til að ganga í hjúskap; ýmislegar breytingar voru gerðar á hjúskaparlögunum; eins og varðandi lögsögu í hjónaskilnaðarmálum og breytinga sem snúa að því að færa tiltekin verkefni frá dómsmálaráðuneytinu til sýslumanna.
Einnig var lögfest sú grunnregla að hjúskapur sem er stofnaður til í útlöndum verður að uppfylla skilyrði sem lögfest eru í vígslulandinu til að vera viðurkenndur sem hjúskapur.
Hjúskapur sem stofnað er til í útlöndum verður þó ekki viðurkenndur hér á landi ef annað hjóna eða bæði voru yngri en átján ára þegar vígslan fór fram.
Þegar ótvíræðir hagsmunir þess sem var yngri en átján ára krefjast þess verður þó heimilt að viðurkenna hjúskap hér á landi ef viðkomandi hafði náð sextán ára aldri þegar hjónavígsla fór fram og hjúskapurinn er viðurkenndur í því landi þar sem hjónavígslan fór fram.
Þá voru nokkrar breytingar gerðar á ákvæðum hjúskaparlaga varðandi lögsögu íslenskra stjórnvalda varðandi hjúskap; til dæmis varðandi lögsögu dómstóla til þess að veita lögskilnað á Íslandi í tilteknum tilvikum ef hvorugur aðili býr hér, og viðkomandi eru ekki íslenskir ríkisborgarar.
Og nú má höfða mál til hjónaskilnaðar hér á landi ef hjónavígslan hefur farið fram hér – og leitt er í ljós að stefnandi geti ekki höfðað mál í landinu þar sem hann er búsettur eða hefur ríkisfang.
Stjórnvöld geta nú leyst úr hjónaskilnaðarmálum er tengjast öðrum ríkjum ef hjónavígsla hefur farið fram á Íslandi, og leitt er í ljós að sá sem óskar hjónaskilnaðar getur ekki óskað eftir hjónaskilnaði í landinu þar sem hann á ríkisfang eða er búsettur.