Ásgeir Jónsson, söngvari Baraflokksins er látinn, 59 ára að aldri eftir baráttu við illvígt krabbamein.
Ásgeir starfaði árum og áratugum saman við hljóðstjórn og hljóðupptökur, meðal annars í samstarfi við Tómas Tómasson bassaleikara Stuðmanna. Ásgeir náði aðeins 59 ára að aldri.
Ásgeir var einn nafntogaðasti rokksöngvari þjóðarinnar og orðlagður lagahöfundur með Baraflokknum sem hóf starfsemi á Akureyri um 1980. Sveitin sendi frá sér þrjár hljóðversplötur og fjöldi laga hennar varð afar vinsæll og má þar nefna A Matter Of Time og I don´t like your style
Ásgeir var fæddur 22. nóvember 1962 og hefði því orðið sextugur á þessu ári. Bróðir Ásgeirs, Vilhjálmur Jónsson, greindi frá andlátinu á Facebook.