- Advertisement -

Arndís Anna með ræðu númer 131

Útlendingamál Jóns Gunnarssonar verður enn á dagskrá þingsins í dag. Píratar hafa verið iðnir við kolann og verið í grímulausu málþófi. Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir hefur trúlega talað þeirra mest. Að óbreyttu mun hún halda ræðu númer 131 í dag um þetta eina mál.

Einn af þeim sem hefur haft orð á málþófinu er Birgir Þórarinsson, liðhlaupi úr Miðflokknum og nýliði í Sjálfstæðisflokki, en hann hefur náð að vera ræðukóngur þingsins. Þá var hann, og aðrir í Miðflokki, með málþóf vegna orkupakkans.

Það fennur í sporin.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: