Marta Jónsdóttir, sem er starfandi hjúkrunrafræðingur, leggur Svandísi Svavarsdóttur gott lið í grein sem birt er í Mogganum í dag.
Marta byrjar greinina svona:
„Í grein heilbrigðisráðherra, „Næstu skref“, sem birtist í Morgunblaðinu 16. júní síðastliðinn, varð henni tíðrætt um næstu skref sem þarf að stíga til að bæta heilbrigðiskerfið. Talin voru upp mörg verkefni, bæði sem snúa að Landspítala og öðrum stofnunum. Sumarið er góður tími til að nýta í þágu heildstæðrar heilbrigðisþjónustu.“
Síðan kemur upptalningin, sem er ekki stutt:
„Sumarið 2018 þegar Landspítali þarf að loka sérhæfðri bráðþjónustu fyrir hjartasjúklinga í fjórar vikur vegna skorts á hjúkrunarfræðingum.
Sumarið 2018 þegar fíknigeðdeild Landspítala er lokað í sjö vikur vegna manneklu.
Sumarið þegar ljósmæður standa í harðri kjarabaráttu.
Margar hafa sagt upp og fyrirséð að ekki verður hægt að halda uppi öruggri þjónustu fyrir fæðandi konur og nýbura eftir 1. júlí.
Sumarið þegar starfsfólk Landspítala tjáir sig opinberlega, lýsir yfir áhyggjum af ástandinu og notar setningar eins og „við erum hrædd um öryggi sjúklinga“.
Sumarið sem hófst með tæplega 50 lokuðum sjúkrarýmum á Landspítala vegna skorts á hjúkrunarfræðingum.
Sumarið þegar heimahjúkrun höfuðborgarsvæðisins hefur lýst því yfir að hún kvíði sumrinu vegna manneklu.
Sumarið þegar fordæmalaust álag er á bráðamóttöku Landspítala, vantar að manna allt að 100 vaktir og það eina sem fram undan er er meira álag. Vonandi gerist ekkert alvarlegt.
Það er mikilvægt að byggja hús, skapa gott umhverfi, hlúa að framtíðinni.
Enn mikilvægara er að hafa í huga að heilbrigðiskerfi er og verður ekki byggt upp á húsum, heilbrigðiskerfi er byggt upp á fólki.
Til að hægt sé að bjóða upp á heildstæða heilbrigðisþjónustu þarf að bæta kjör heilbrigðisstétta.
Það er nú eða aldrei, sumarið er ekki bara góður tími, það er mögulega eini tíminn sem við höfum.“
Í dag skrifar einnig ljósmóðirin, Guðrún Pálsdóttir, sem segir: „Það vantar ljósmæður til starfa. Svarið er ekki að fjölga útskrifuðum ljósmæðrum þegar einungis þriðjungur þeirra sem útskrifast sér sér fært að hefja störf eftir nám.“
Allt eru þetta eflaust þarfar ábendingar. Svo er að sjá hvort ráðherra geri eitthvað með það sem sagt er og bent er á.