- Advertisement -

„Allsherjardellumakkerí“ á Alþingi

Ekki er á nokkurn mann leggjandi að hlusta á allar ræður Miðflokksmanna.

Ekki er á nokkurn mann leggjandi að hlusta á allar ræður Miðflokksmanna á Alþingi í umræðu um meðferð krónueigna.

Ein af ræðum formannsins, Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, er komin á vef Alþingis. Þar gerir hann mikið úr hlut Miðflokksins. En ekki hvað.

„Þegar þingmenn Miðflokksins uppgötvuðu það óvænt hér á síðasta degi þingstarfa í

Þú gætir haft áhuga á þessum

desember að hæstvirtur fjármálaráðherra vildi lauma þessu máli inn og í gegn, brugðust menn að sjálfsögðu við því. Þá má segja að fyrst hafi hringt viðvörunarbjöllum. Svo er það rétt að þingmenn sem höfðu hugsað sér að taka þátt í þessari umræðu náðu ekki að gera það í 1. umræðu í janúar þegar málinu var í rauninni smeygt hér í gegn á meðan allsherjardellumakkerí var í gangi annars staðar í þinghúsinu út af allt öðrum málum. Þá aftur veltir maður fyrir sér tímasetningunni og hvernig að þessu var staðið.“

Meira seinna ef ástæða verður til.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: