Á öllum þeim 91 veitingastað sem Neytendastofa kannaði voru ónotaðar ólöggiltir vínmælar, sjússamælar.
„Vínmál eiga að vera löggild eins og sjússamælar og vínskammtarar eða sérmerkt glös. Farið var á 91 vínveitingastað og kom í ljós að almennt voru notuð rúmmálsmerkt vínmál við sölu á sterku áfengi en töluvert vantaði upp á að viðkomandi búnaður væri löggiltur. Af þeim veitingastöðum sem kannaðir voru reyndist enginn í lagi. Bjórglös voru í flestum tilvikum með rúmmálsmerki. Léttvínsglös voru ekki merkt en eitthvað var um að þess í stað væru notuð mælikör (karafla/samanburðarmál) eða litlar flöskur,“ segir Neytendastofa.
„Árið 2013 voru löggilt 63 veltivínmál. Neytendastofa mun áfram vinna að því að söluaðilar áfengis noti mælibúnað sem uppfyllir lög og reglur. Þetta verður gert í samráði við hagsmunaaðila og eins með heimsóknum á sölustaði þar sem vínmál verða skoðuð.“