„Ég þarf að kanna þetta hjúskapareyðublað sérstaklega um skilnað. En ég er auðvitað líka að skoða lög og ákvæði um skilnað og hvernig hægt er að gera það allt auðveldara í framkvæmd, sem kemur kannski ekki bara rafrænum sjónarmiðum við,“ sagði dómsmálaráðherrann, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, eftir að Helga Vala Helgadóttir spurði hvort hafi komið til greina að gera breytingar á hjúskaparlögum þannig að fólk geti hreinlega farið inn á rafrænt Ísland og sótt um hjónaskilnaði.
Umræðan hófst þegar verið var að ræða frumvarp ráðherrans um rafræna fyrirtöku hjá sýslumönnum.
„Þá vil ég spyrja aðeins út í frumvarpið, hvort ekki hafi komið til greina að gera einnig breytingar á hjúskaparlögum þannig að fólk geti hreinlega farið inn á rafrænt Ísland og sótt um hjónaskilnaði þar vegna þess að það hefur ákveðin réttaráhrif um leið og sótt er um skilnað, það verða ákveðin réttaráhrif bara við umsóknina. Í dag þarf að bíða mánuðum saman eftir fyrsta viðtali hjá fulltrúa og það getur ótrúlega margt gerst á þeim tíma, sérstaklega þegar um er að ræða mjög erfiðar aðstæður milli hjóna. Þá finnst manni hart að stjórnsýslan komi í veg fyrir eðlileg réttaráhrif þegar fullorðið fólk er að krefjast skilnaðar,“ sagði Helga Vala..
Áslaug Arna brást við með þessum orðum:
„Þetta er eitthvað sem ég hef verið að skoða og búið er að setja hátt í 50 ný eyðublöð inn á island.is er varða fjölskyldusvið. Það er von okkar að það auðveldi og flýti fyrir málsmeðferð og hjálpi til við að stytta allt of langa biðlista sem eru í þeim málaflokki hjá sýslumanni. Við sjáum sífellt fleiri fara inn á island.is, í raun bætast eyðublöð við í hverri viku og ég bind miklar vonir við að þau muni hjálpa til við að flýta réttaráhrifum, stytta biðlista hjá sýslumanni og auka skilvirkni kerfisins.“
-sme