ESB-sinnar í ríkisstjórn segja stríð við þjóðina réttlátt.
Þrátt fyrir að ráðherrunum hafi tekist að berja niður andstöðu allra þingmanna, við þriðja orkupakkann, eiga þeir mikið verk eftir ætli þeir að gera það sama við andstöðuna í flokknum sjálfum.
Harðast og áhrifamestur á þeim bekk er Davíð Oddsson sem stýrir mæalgagninu. Hann er fullur vantrausts, eins og lesa má í Staksteinum dagsins.
„Fyrir liggur að þeir lögfræðingar sem enn má treysta vara við gjörningnum vegna þess að hann stangast á við stjórnarskrá sem fyrri pakkar gerðu reyndar einnig, en bitarnir þá svo smáir að almenningur gætti ekki að sér. (Agúrkuaðferðin.)“
Um sitt eigið fólk skrifar Davíð, og reynir að slá nokkrar flugur í þessu eina og sama höggi: „Nú segja talsmenn ESB í ríkisstjórninni að það réttlæti átök við þjóðina og að ljúga pakkann í gegn að fengist hafi fyrirvarar frá Brussel sem gjörbreyti málinu. Þeir eru þessir:
Embættismaður í Brussel hafi upplýst að rafmagnsstrengur til Evrópu hafi ekki enn verið lagður. Embættismaðurinn hefur sjálfsagt sannreynt þetta sjálfur þegar hann kom með seinasta flugi WOW eftir gjaldþrot.
Embættismaðurinn sá lét ekki við þær upplýsingar sitja að rafstrengurinn væri enn ólagður, sem kom utanríkisráðuneytinu þægilega á óvart.
Hann lofaði því að strengurinn „yrði ekki lagður án þess að umræða um það fari fram“!
Theresa May taldi sig útskrifaða í dellurökum um brexit en jafnvel hún gæti grætt á námskeiði hér.“