Guðmundur Franklín Jónsson skrifar:
Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn hefur fengið úthlutað listabókstafnum O.
Flokkurinn hyggst bjóða fram lista í öllum kjördæmum í komandi alþingiskosningum. Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn berst fyrir fullveldi landsins, beinu lýðræði, auðlindum í eigu þjóðar og gegn spillingu.
Flokkurinn verður með opinn stofnfund sem verður auglýstur síðar.
Áhugasamir geta fylgst með umræðunni og málefnastarfinu á facebook síðu flokksins „Betra Ísland – Beint lýðræði“
Áhugasamir geta einnig haft samband í gegnum netfangið:
frjálslyndi@gmail.com.