Vilhjálmur Birgisson skrifar:
Akraneskaupstaður hefur tekið saman aðgerðapakka til að bregðast við Covid-19 og mér sýnist að inn í þeim pakka sé margt sem muni létta undir með fyrirtækjum og bæjarbúum.
Mínar áhyggjur liggja í atvinnuástandinu en eins og fram kemur á þessari mynd þá áætlar Vinnumálastofnun að atvinnuleysið á Akranesi eigi eftir að aukast umtalsvert og er gert ráð fyrir að atvinnuleysið í þessum mánuði muni nema 8,1%
Því miður óttast ég að það eigi á næstu mánuðum eftir að ná allt að 14% og því er gríðarlega mikilvægt allt sé gert til að, verja störf, verja kaupmáttinn og verja heimilin.
Aðgerðaleysi sem byggist á því að gera ekki neitt, er og hefur aldrei verið boði hjá okkur Akurnesingum.