Sólveig Anna las leiðara Fréttablaðsins:
Í leiðara Fréttablaðsins í dag eru menn að sýna hvað þeir geta: Að ríkið selji Íslandsbanka heitir ekki lengur að ríkið selji Íslandsbanka heldur að það „umbreyti eign sinni í innviði.“ Þetta er mjög töff og ég óska ritstjóranum til hamingju með að hafa svona yfirburðagetu í neoliberal-orðasalata-eldamennsku.
„Þá væri skynsamlegt að umbreyta eign ríkisins í Íslandsbanka í innviði. Þótt slíka sala geti vart verið þáttur í skammtímaátaki á fjármögnun nauðsynlegra innviðaframkvæmda, væri eignasalan skynsamleg – og ætti að skapa rými og tækifæri.“