Við að hlusta á málflutning þingmanna um áfengisfrumvarpið kemur helst í ljós að flutningsmenn málsins og stuðningsmenn þess eru á móti þekkingu. Þau fara gegn viðurkenndu fræðafólki um hugsanlegar afleiðingar gangi málið eftir.
Segja má að allir álitsgjafar, allir sem hafa þekkingu á hugsanlegum afleiðingum, vara við samþykkt málsins.
Einhverra hluta vegna kjósa flutningsmenn að virða öll varnaðarorð að vettugi.
Það er kannski merkilegast við að hlusta á þingmennina.
Þú gætir haft áhuga á þessum
Að lokum, mikill markaðsmaður hefur sá verið sem kom að hugtakinu; vínmenning. Skárri er það fjandans menningin.
Sigurjón M. Egilsson.