„Ef ég væri Bandaríkjamaður þá væri það mér ráðgáta hvernig hagmunir mínir og míns samfélags tengdust hagsmunum Sádi-Araba, og hvers vegna ég ætti yfirhöfuð að hafa skoðun á ágreiningi súnníta og síta, sem snýst í grunninn um það hvort ráðgjafi Múhameðs eða tengdasonur hafi átt að taka við af honum sem leiðtogi múslima á 7. öld,“ skrifar Guðmundur Andri Thorsson Samfylkingu á Facebook rétt í þessu.
„Ég myndi ekki skilja hvað ég ætti sökótt við Írani eða hvers vegna ég ætti að hafa áhyggjur af valdabrölti þeirra í löndunum fyrir botni Miðjarðarhafs. Ég myndi hins vegar þrýsta á orkuskipti til að þessir olíusalar allir hafi minni áhrif á gang heimsmála og líka til að draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda. En ég er ekki Bandaríkjamaður. Hins vegar fæ ég að súpa seiðið af uppátækjum Bandaríkjaforseta – og núverandi ríkisstjórn okkar Íslendinga hefur verið að treysta böndin við þetta herveldi, jafnvel búa í haginn fyrir endurkomu ameríska hersins. Það finnst mér hættuspil; við eigum að fjarlægja okkur bandarískum hagsmunum eins og við mögulega getum, jafnvel að íhuga úrsögn úr Nató meðan Bandaríkjamenn eru þar svo fyrirferðarmiklir,“ skrifar þingmaðurinn.