Til að kóróna þetta allt saman þá hefur Þorsteinn Már farið fram á að sleppa við að borga veiðigjöldin og ber fyrir sig veiruna.
Katrín Baldursdóttir skrifar:
Þorsteinn Már hjá Samherja er á algjörum sérdíl hjá stjórnvöldum. Hann gengur ennþá laus þrátt fyrir alvarlega glæpi í fátækum löndum, sjávarútvegsráðherra Íslands hringir í hann til að spyrja hvernig honum líði eftir að upp komst um glæpina og Fjármálaeftirlitið hefur nú bugtað sig og beygt fyrir honum og sleppt honum við yfirtöku á Eimskip sem hann var skyldaður til samkvæmt lögum. Fjármálaeftirlitið sparaði honum þannig 20 milljarða. „Sérstakar aðstæður“ voru rök Fjármálaeftirlitsins. Það var allt og sumt.
Forráðamenn Lífeyrissjóðsins Birtu, sem á sex prósent hlut í Eimskip, furða sig á þessu og hafa farið fram á nánari rökstuðning á þessum gjörningi sem á sér vart fordæmi. „Sérstakar aðstæður“ finnst Birtu engan veginn nægjanleg rök.
Málið snýst um að Samherji hefur keypt það mikið í Eimskip að hlutur félagsins er kominn yfir 30 prósent. Lögum samkvæmt myndast þá skylda á Samherja að gera öðrum hluthöfum yfirtökutilboð.
En nei, Samherji er á sérdíl hjá stjórnvöldum og þarf ekki að fara að lögum frekar enn fyrri daginn. Og til að kóróna þetta allt saman þá hefur Þorsteinn Már farið fram á að sleppa við að borga veiðigjöldin og ber fyrir sig veiruna.