- Advertisement -

Lögreglan gætir nýju ríkisstjórnarinnar

Það er kannski ekki nema von að fjölga eigi í lögreglunni verði vaninn sá að lögregla gæti ríkisstjórnarfunda. Og þá helst fyrir fjölmiðlum. Hvaða endemis rugl er þetta?

Ráðherrarnir ellefu eru mættir á Þingvelli þar sem ríkisstjórnarfundurinn er. Eflaust hver í sínum einkabíl og með sínum einkabílstjóra. Geta ekki tveir eða fleiri verið í hverjum bíl?

Illa er af stað farið. Ef þetta er það sem koma skal er ekki von á góðu. Fjölmiðlar hafa skyldur sem þeir verða að fá gegna. Ekki síst ef þetta er upptakturinn af því sem koma skal.

Vonandi átta ráðherrarnir sig á að svona háttalag gengur ekki. Ráðherrar verða að vera til svara þegar þess er óskað. Annað hvort er þetta ofmat eða barnaskapur. Barnaskapurinn er skárri en ofmatið.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Vonandi er þetta þó bara vegna reynsluleysis. En ekki lofar þetta góðu.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: