- Advertisement -

Vaxandi titringur í Valhöll

„Það er hægt að glutra þessu niður með röng­um ákvörðunum – og þá sér­stak­lega þegar vel geng­ur.“

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir.

Auðvitað er ólga innan Sjálfstæðisflokksins. Forysta flokksins þarf að þola eitt og annað. Sumt skiptir kannski ekki miklu máli. Það fer eftir hver talar.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, sem er klárlega meðal þeirra sem koma til greina sem næsti formaður Sjálfstæðisflokksins, skrifar eftirtekta grein í Moggann í dag. Þar rekur híun sögu heimsþekktra stórfyrirtækja sem vegna rangra ákvarðana urðu nánast að engu.

Fyrirtækin eru Kodak, Nokia, Blockbuster og Compaq. Hún endar svo greinina svona:

Seint í greininni segir: „Það er hægt að glutra þessu niður með röng­um ákvörðunum – og þá sér­stak­lega þegar vel geng­ur.“

Sjálfstæðisflokkurinn er í sárum. Aldrei haft minna fylgi og annað er eftir því. Áslaug Arna endar greinina svona: 

„Það þarf Sjálf­stæðis­flokk­ur­inn líka að gera. Nýta þessi mögu­legu tíma­mót vand­lega og taka rétt­ar ákv­arðanir þegar kem­ur að því að tak­ast á við framtíðina.“

Öllu læsu fólk er ljóst hvað er átt við. Nema kannski Bjarna og Þórdísi Kolbrúnu. Seinnilegast er best fyrir þau að svara sem fyrst hvað þau hyggist fyrir. Ætla þau að gefa áfram kost á sér í forystu flokksins, eða ekki.

-sme


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: