- Advertisement -

Magnús vill verða rektor Háskóla Íslands

Magnús Karl Magnússon gefur kost á sér til embættis rektors Háskóla Íslands. Hann skrifaði:

Eftir margra ára störf við Háskóla Íslands og áður við háskóla- og rannsóknastofnanir erlendis hef ég áhuga, reynslu og þekkingu til að leiða uppbyggingu rannsókna og kennslu á háskólastigi. Ég bý einnig yfir miklum metnaði fyrir hönd Háskóla Íslands sem ég vil láta koma að notum. Ég hef því ákveðið að bjóða mig fram í embætti rektors Háskóla Íslands.

Ég hef birt framboðsyfirlýsingu á Substack síðu minni (hlekkur í fyrstu athugasemd hér fyrir neðan) en helstu áherslur mínar eru:

• Að tryggja aukna fjármögnun til Háskóla Íslands. Markmiðið er að framlög til Háskólans séu sambærileg við framlög nágrannaþjóða okkar til háskólamenntunar. Sú vanfjármögnun sem Háskólinn stendur frammi fyrir þrengir að gæðum hans og grefur undan innviðum skólans. Það er brýnt að varðveita þá breidd í námi og rannsóknum sem Háskóli Íslands býr yfir, einn íslenskra háskóla.

Þú gætir haft áhuga á þessum

• Að beita embætti rektors af festu í umræðu um gildi háskóla fyrir samfélagið. Háskóli Íslands hefur á undanförnum árum notið alþjóðlegrar viðurkenningar sem öflugur háskóli á helstu fræðasviðum, en þessi staða er ekki sjálfgefin. Tala þarf skýrt um mikilvægi háskóla sem grunn margvíslegra verðmæta á sviðum vísinda, menningar og lista og aflvaka félagslegs réttlætis, heilbrigðs mannlífs, öflugrar menntunar og efnahagslegrar hagsældar.

• Að efla innviði og bæta aðstöðu fyrir mannauð Háskóla Íslands og stuðla að áframhaldandi nýliðun.Vaxandi álags og þreytu gætir hjá starfsfólki skólans og því þarf að gæta sérstaklega að velferð starfsfólks, jafnrétti og öryggi. Huga þarf sérstaklega að góðri starfsaðstöðu sem sniðin er að þörfum hvers fræðasviðs. Efla þarf þátttöku starfsfólks í skipulagi, stjórnun og mótun framtíðarsýnar skólans.

• Að endurskoða umgjörð rannsóknatengds framhaldsnáms á meistara- og doktorsstigi. Framhaldsnám við Háskóla Íslands hefur aldrei haft viðunandi fjármögnunarlíkan og er fyrir nokkru komið að þolmörkum. Brýnt er að tryggja styrk þess í samanburði við erlenda háskóla og leggja skýra áherslu á alþjóðlegt samstarf. Auk þess þarf að sjá til þess að fjármögnun rannsóknartengds framhaldsnáms sé í samræmi við umfang þess og fjármögnunarlíkan tryggi gæði námsins.

• Að efla rannsóknir á öllum sviðum og jafnframt efla rannsóknavitund nemenda allt frá upphafi grunnnáms í skólanum. Öflugt rannsóknarstarf er nauðsynlegur drifkraftur nýliðunar í háskólum með aðkomu nýdoktora og nýrra akademískra starfsmanna, auk þess sem slík uppbygging er forsenda nýsköpunar á öllum sviðum atvinnulífs.

• Að auka samstarf milli deilda og fræðasviða við rannsóknir og kennslu. Einn helsti styrkur Háskóla Íslands liggur í fræðilegri breidd skólans. Draga þarf markvisst úr hindrunum fyrir fræðilegu samstarfi, bæði við kennslu og rannsóknir. Hyggja þarf sérstaklega að hvötum í fjárhagslíkani skólans sem aukið geta og eflt slíkt samstarf.

• Leita leiða til að draga úr vinnu nemenda með námi. Of margir háskólanemar vinna samhliða fullu háskólanámi. Það er mikið hagsmunamál fyrir háskólamenntun í landinu að námsmönnum sé veittur nægilegur fjárhagslegur stuðningur svo þau megi helga sig háskólanámi. Háskólayfirvöld eiga að leggja samtökum stúdenta lið í þessari hagsmunabaráttu.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: