Sigurjón Þórðarson oddviti Flokks fólksins í Norðausturkjördæmi skrifar:
Nú skal það tekið fram að ég er ekki á móti hvalveiðum þ.e. ef veiðarnar fara fram með mannúðlegum hætti. Það er hins vegar útilokað að kenna stækkandi hvalastofnum um að veiðin á loðnu hafi dregist gríðarlega saman. Það liggur fyrir að „endurbætt“ ráðgjöf Hafró hefur ítrekað leitt til aflabrests sjá hér.
Málið er að það tekur stórhveli hátt í áratug að verða kynþroska og kýrnar bera ekki nema um þriðja hvert ár eftir það. Það er því augljóst að mjög hægfara breyting á stærð hvalastofna sem vissulega eru stórtækir afræningjar getur ekki skýrt þá hörmungaveiði sem hefur verið á loðnu frá aldamótum sjá mynd.
Nærtækara er að leita skýringa á minni veiði, í aukinni samkeppni og afráni annarra fiska. Fiskarnir sjálfir eru miklu mun stærri affallaþáttur en þáttur mannsins og það sem fer ofan í hvalinn.
Þessi staða sem uppi hvað varðar útlit loðnuveiða ætti að verða uppspretta uppbyggilegrar umræðu um ráðgjöfina sem greinilega þarf að endurskoða.
Ef fiskistofn er álitin vera 1 milljón tonn þá er ekki ólíklegt að hann éti um 3% af þyngd sinni á dag eða 30 þús tonn á dag eða um þrefaldan afla þess sem strandveiðibátar komu með að landi á vertíðinni.
Nú er hægt að fara í ýmsa reikninga hvað þetta eru margar milljónir eða tugir milljóna tonna á ári, en aðalatriðið er að ef ef dregið er úr veiðum þá safnast enginn lífmassi upp í hafinu.