- Advertisement -

Sýna Valgeiri fullkominn dónaskap

Valgeir Guðjónsson tónlistamaður er ósáttur vegna svokallaðra heiðurstónleika Spilverks þjóðanna. Sem kunnugt er var Valgeir í þeirri sveit og samdi þar mörg frábær lög og texta.

Valgeir skrifar:

„Heiður eða lítilsvirðing

Myndin er tekin þegar fulltrúi útgáfunnar Alda Music kom með heildarsafn Spilverks á Vynil til afla áritunar höfunda.
Það var sko ánægjuleg stund.

Kæru vinir Spilverks þjóðanna, þennan tölvupóst ritaði ég í gær sem svar við boði á tónleika í Hörpu nk sunnudag sem Jón Ólafsson stendur fyrir og Dægurflugan annast framkvæmd á.

„Spilverk þjóðanna Heiðurstónleikar“

„Sæll Einar, óánægja mín hefur ekki farið framhjá þér varðandi hvernig staðið hefur verið að þessum tónleikum sem þú býður mér á. Ég reikna með að Jón Ólafsson hafi verið hönnuðurinn frekar en þið hjá Móðurfélaginu/ Dægurflugunni. – Leiðréttu mig endilega ef það er ekki svo.

Það að fá Diddú í flutning laga okkar og þá son Egils en líta fram hjá mér (ég get ekki talað fyrir hönd Sigurðar Bjólu), er særandi og að margra mati ef ekki flestra sýnir það lítilsvirðingu í minn garð.

Væru flytjendur allir úr öðrum áttum myndi það horfa öðruvísi við. Þá hefði samt verið eðlileg og kurteis framkoma að ræða við höfunda um þennan stóra viðburð og reifa hugmyndir um hann.

Tveir af meðlimum Spilverks eiga sér fulltrúa í flutningi laga á þessum tónleikum (Diddú einn fyrrverandi virkur meðlimur og einn afkomandi, Ólafur Egilsson) á meðan flutnings er ekki óskað af hinum tveimur meðlimunum, að minnsta kosti hef ég ekki verið beðinn.

Mér þykir leitt að þurfa að afþakka boð ykkar þar sem í mínum huga á orðið heiður ekki heima hér heldur lítilsvirðing.

Kær kveðja

Valgeir Guðjónsson.“

ATH. Formáli að þessum pósti er að okkur Sigurði Bjólu ásamt fleirum barst tölvupóstur þann 30. maí sl. þar sem okkur var boðið á þessa tónleika sem ákveðið hafði verið að halda án okkar vitundar. Við brugðumst strax við og lýstum yfir óanægju okkur en fátt var þá um svör. Svo er nú það.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: