- Advertisement -

Þingmenn í vita gagnslausum og rándýrum utanferðum

„Ég ætla ekki að vera skemmtilegur í þessari ræðu þegar ég segi: Obbinn af þessum ferðum er gjörsamlega tilgangslaus. Þetta eru rándýrar ferðir sem þyrfti að skera niður verulega.“

Jakob Frímann Magnússon.

„Í morgun hélt allstór nefnd á vit gamla herraríkisins með ærnum tilkostnaði, m.a. fólk úr þessum sal. Fram undan er fjölmenn ferð til Aserbaísjan á loftslagsráðstefnu og fjölmargar aðrar ferðir þingmanna á dagkaupi, dagpeningum, rándýrar ferðir. COSAC er ein ráðstefnan sem ég hef áður sótt og er algjörlega tilgangslaus, en það er svona að vera maður með mönnum og að mæta er pressan,“ sagði Jakob Frímann Magnússon Flokki fólksins á Alþingi fyrir nokkrum augnablikum.

„Ég ætla ekki að vera skemmtilegur í þessari ræðu þegar ég segi: Obbinn af þessum ferðum er gjörsamlega tilgangslaus. Þetta eru rándýrar ferðir sem þyrfti að skera niður verulega. Hvers vegna nefni ég þetta núna? Við erum að horfa upp á, eins og kom fram í ræðu fyrr í dag og reyndar í gær, að fólk á ekki fyrir sundferð handa börnunum sínum. Við erum með tugþúsundir hér í einu ríkasta landi heims, tugþúsundir fólks á öllum aldri með hungurvofuna á hælunum,“ sagði Jakob Frímann. Hann lauk ræðu sinni með þessum orðum:

„Ég tel að það mætti vel svara kostnaði og gott það að hefja markvissan niðurskurð á óþarfanum og skipa hér aðhaldsmann Alþingis.“ 

JFM.
Þú gætir haft áhuga á þessum

„Við þær aðstæður í 1.500 milljarða hagkerfi er gjörsamlega óviðeigandi að leggjast í dýrar lúxusreisur þingmanna og annarra embættismanna á fullum dagpeningum. Við erum nýbúin að skipa hér umboðsmann Alþingis að nýju og megi þeirri ágætu manneskju vel vegna í sínum störfum. Ég tel að það mætti vel svara kostnaði og gott það að hefja markvissan niðurskurð á óþarfanum og skipa hér aðhaldsmann Alþingis.“ 


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: