- Advertisement -

Þórður Snær genginn í Samfylkinguna

Þórður Snær Júlíusson skrifar:

Hér kemur tilkynning.

Ég hef ákveðið að taka þátt í skipulögðu stjórnmálastarfi í fyrsta sinn á ævi minni og skrá mig í Samfylkinguna. Ég tel, eftir töluverða yfirlegu og fjölmörg samtöl, að þar sé að finna þá pólitík sem mér hugnast best og fer saman við þær áherslur sem ég vil sjá að séu ráðandi í samfélaginu. Nú er tíminn til að knýja fram réttlátar breytingar á Íslandi og Samfylkingin, sem hefur opnast og breikkað með innkomu og undir forystu Kristrúnar Frostadóttur, er að mínu mati aflið til að leiða þá vegferð. Ég vil taka þátt í því stóra verkefni af fullum krafti og leggja mitt lóð á vogaskálarnar fyrir betra samfélagi.

Ég hef í tæpa tvo áratugi unnið við það að greina hvað sé að og nú – fyrst ég er ekki starfandi blaðamaður (það er ekki viðeigandi fyrir þá að taka þátt í flokkapólitík) í fyrsta sinn síðan á árinu 2005 – þá langar mig að taka þátt í að búa til lausnir. Ég hef þegar tekið að mér, frá og með komandi mánaðamótum, ákveðin verkefni tengd stefnumótun fyrir flokkinn.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Samhliða hef ég tilkynnt stjórnendum Morgunvaktarinnar á Rás 1 að ég sé hættur að greina efnahagsmál og samfélag á þeim vettvangi, en það hef ég gert óslitið síðan í byrjun árs 2019. Greiningin á þriðjudag var því sú síðasta. Það passar ekki saman, að mínu viti, að taka þátt í skipulögðu flokksstarfi og sinna því hlutverki. Frábærum stjórnendum og öllum sem hafa hlustað þakka ég samfylgdina í næstum sex ár.

Skrifin í fréttabréfinu Kjarnyrt verða áfram sem áður eins og boðað hefur verið: sanngjörn, vel undirbyggð, greinandi, heiðarleg og gagnrýnin en líka lausnamiðuð.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: