- Advertisement -

„Þetta er allt að koma“ eða; „er þetta ekki að verða búið“

Fjármálaráðherra til varnar tók forveri hans upp þennan takt í kynningu fjárlaga fyrir nokkrum árum…

Bergþór Ólason.

Alþingi „Þetta er allt að koma, er sagt um þau fjárlög sem hér liggja fyrir. Fer þetta ekki að verða búið, væri annar möguleiki ef menn vilja á annað borð nefna fjárlögin einhverjum nöfnum. En það vakti athygli mína í kynningu hæstv. fjármálaráðherra á frumvarpinu að heildarútgjöld ríkissjóðs á næsta ári komu aldrei fram, sem er mögulega mikilvægasta talan af öllum tölum í fjárlögunum. Fjármálaráðherra til varnar tók forveri hans upp þennan takt í kynningu fjárlaga fyrir nokkrum árum og ég hef þess vegna spurt fjármálaráðherra hverju sinni í andsvari mínu hver heildarútgjöld ríkissjóðs verði á næsta ári samkvæmt fjárlagafrumvarpinu. Ég bara gleymdi því í andsvörum mínum fyrr í dag þannig að ef hæstvirtur fjármálaráðherra kemur hér upp þá væri nú gaman að heyra hann segja það,“ sagði Bergþór Ólason á Alþingi.

Síðar sagði hann;

„Hæstvirtur fjármálaráðherra kom inn á það í ræðu sinni að ef verðbólguvæntingar eða verðbólguspá sú sem nú er horft til gengur eftir muni afborgun 30. millj. kr. láns með breytilegum vöxtum lækka um 50.000 kr. á mánuði fyrir lok næsta árs. Fjármálaráðherra gleymdi alveg að nefna í þessu samhengi hvað þetta sama lán hefur hækkað mikið í mánaðarlegum afborgunum undanfarið. Það er miklu hærri tala en lofað er í lækkun gangi þessar spár eftir. Það verður að skoða þessa heildarmynd og líka í tímalegu samhengi.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: