Stjórnmál
Í meira en áratug hefur Sjálfstæðisflokkurinn verið fyrirferðamesti stjórnarflokkurinn. Fyrst með Framsóknarflokki Sigmundar Davíðs og síðan með Vinstri grænum og Framsóknarflokki Sigurðar Inga.
Þá er fínt að líta yfir farinn veg. Nú þegar ríkir fullkominn upplausn í efnahagsmálum. Óðaverðbólga og hæstu vextir í Evrópu. Í þessu ástandi skrifar Óli Björn Kárason, stjórnmálamaðurinn í sínum flokki:
„Sjálfstæðisflokkurinn einn hefur burði til þess að vinna að því að stokka upp rekstur ríkisins.“
Já, merkilegt hjá Óla. Eftir rúman áratug við stjórnvölinn segir hann sinn flokk vera eina flokkinn til að leiðrétta kúrs flokksins. Brandari.
„Markmiðið er að gera ríkisreksturinn hagkvæmari og þjónustuna betri.“
Núna Óli Björn? Eftir að hafa stýrt þessum málum í meira en tíu ár. Kanntu annan?
„Það er nauðsynlegt fyrir Sjálfstæðisflokkinn að marka skýra langtímastefnu í ríkisfjármálum þar sem stærsti hluti hagvaxtarauka komandi ára verði eftir í launaumslagi launafólks,“ skrifar Óli Björn.
Óli Björn hefur sýnilega verið yfirkeyrður af þreytu þegar hann lét þessa þvælu frá sér. “…verði eftir í launaumslagi launafólks.“
Held að það sé kvitt og klárt að Óli Björn sjálfur trúir þessu ekki.
„Sjálfstæðisflokkurinn verður að treysta á stuðning kjósenda. Grunninn að þeim stuðningi þarf að leggja á komandi vikum og mánuðum,“ skrifar stjórnmálamaðurinn Óli Björn.
Skrif Óla Björns eru í Mogganum í dag. Þar með munu nánast eingöngu innmúraðir og innvígðir lesa hana.
–sme