Ásmundi Friðrikssyni er ekki skemmt yfir hótunum útgerðarinnar um að flytja fiskvinnsluna til útlanda. Ásmundi var mikið niðri fyrir í ræðustól Alþingis fyruir stundu. Minnti á hversu mikið útgerðin hefur hagnast á liðnum árum. „Þing og þjóð lætur ekki hóta sér svona,“ sagði Ásmundur og sagðist tala af sjómannasið og sagði við þá sem nú hóta: „Farið til andskotans“.
Unnur Brá Konráðsdóttir, forseti þingsins, minnti Ásmund á að gæta orða sinna.
Þú gætir haft áhuga á þessum