Svandís Svavarsdóttir skrifar grein í Mogga dagsins: „Til vinstri fyrir réttlátt þjóðfélag“.
„En hér á landi er afstaða almennings skýr; að afrakstur auðlindanýtingar auðgi íslenskt samfélag í stað þess að safnast upp í fjárhirslum erlendra og innlendra auðmanna. Við í Vinstri grænum munum halda sjónarmiðum almennings til haga hér eftir sem hingað til og standa vörð um almannahagsmuni gegn sérhagsmunum fjármagnseigenda,“ segir í grein Svandísar.
Þetta er eflaust gott og blessað. Hitt er annað að Svandís og aðrir félagar í Vinstri grænum eiga langt í land til að endurheimta eigin styrk. Eftir að hafa setið í ríkisstjórn undir stjórn Sjálfstæðisflokksins á lokasprettinum, og jafnvel lengur, er næsta víst að VG er í kröggum.
Félögum í VG hefur fækkað duglega meðan forystan hefur verið í faðmlagi við erkióvininn úr Valhöll. Það eru því fáir eftir til að reyna vinstri beygjuna með Svandísi.
Hvers vegna? Jú, helst vegna þess sem Svandís nefnir í greininni. Hún undantekur ekki Ísland, eðlilega:
„Víða um lönd hafa fámennir hópar auðmanna náð að umbreyta fjármunum sínum í pólitísk völd í gegnum eignarhald á fjölmiðlum og í gegnum hagsmunaaðila. Barist fyrir taumleysi fjármagnsins.“
Með allt þetta í farteskinu er næsta óvíst hvort Svandís nái vinstri beygjunni. Sjáum til hvernig til tekst.
-sme