Alþingi
„Það blasir við
okkur ansi áhugaverð staða nú á lokametrum þessa þings. Það er eiginlega ekki
hægt að segja annað. Nýjasta fréttin er sú að Miðflokkurinn hefur boðað
mögulega vantrauststillögu á hæstvirtan matvælaráðherra. Mig langar að segja
það hér að ég styð þá tillögu eindregið, komi hún fram, bæði með vísan í
stjórnsýslu ráðherrans sem ekki hefur verið heppileg, rétt eins og hjá forvera
hæstv. matvælaráðherra fyrir ári, en ekki síður vegna þess að það er orðið mjög
brýnt að koma þessari ríkisstjórn frá völdum,“ sagði Sigmar Guðmundsson í
Viðreisn á Alþingi.
Miðjan
Ritstjóri Miðjunnar.