- Advertisement -

Fólki fjölgar, glæpir aukast og harðna en á sama tíma fækkar í lögreglunni

„Þeir 895 lögreglumenn sem eru starfandi á landinu í dag eru þess vegna víðs fjarri lágmarksþörfinni.“

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir.

„Á höfuðborgarsvæðinu starfa núna færri lögreglumenn en þegar embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu var stofnað 2007. Þá störfuðu þar 339 lögreglumenn en í dag eða í fyrra voru þeir 297 talsins. Hvað skýrir þá forgangsröðun að lögreglumönnum á höfuðborgarsvæðinu hafi fækkað á sama tíma og fólksfjölgun hefur verið gríðarleg og verkefnin þyngst? Fáliðuð lögregla er ekki bara staðan á höfuðborgarsvæðinu, yfir landið allt speglast þessar pólitísku áherslur stjórnvalda,“ sagði Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir Viðreisn á Alþingi.

„Það er tímabært að vekja athygli á því hversu alvarleg hún er og hverjar birtingarmyndirnar eru. Ég vil sérstaklega ræða þrjú atriði. Fyrst að lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu:

Lögreglan þar þjónar í dag tæplega 250.000 íbúum landsins. Verkefnin eru mörg, fjölbreytt og sum hver auðvitað mjög þung. Hér á svæðinu hefur orðið gríðarleg fólksfjölgun frá því að sameinað embætti var stofnað en lögreglumönnum hefur hins vegar fækkað. Íbúum hefur frá 2007 fjölgað verulega, um 25%, en lögreglumönnum fækkað um 13%. Svo mikil fækkun getur einfaldlega ekki gengið upp hjá embætti sem fær til meðferðar 75–80% allra hegningarlagabrota. Fjárlagafrumvarp ársins 2024 færði embættinu 113 millj. kr. aðhaldskröfu. Hjá stofnun þar sem um 80–90% af rekstrarfé fara í laun hefur þetta strax áhrif. Í fyrra fjölgaði lögreglumönnum vissulega, en það var hins vegar ekki um raunfjölgun að ræða því vinnutímastytting hjá stofnunum sem eru á vakt allan sólarhringinn allan ársins hring gerir að verkum að fjölga þarf bara til að halda í horfinu. 2022 voru lögreglumenn á höfuðborgarsvæðinu um 1,2 lögreglumaður á hverja 1.000 íbúa eða um einn lögreglumaður á hverja 1.000 íbúa. Til að hlutfallið yrði svipað og þar sem hlutfallið er næstlægst á landinu þyrfti að fjölga lögreglumönnum hér um í kringum 200. Telur dómsmálaráðherra að svo fáliðuð lögregla búi við öruggt starfsumhverfi og geti náð fram tilgangi sínum?

Þú gætir haft áhuga á þessum

Annað atriðið sem ég ætla að nefna er landsbyggðin. Árið 2020 var fjöldi lögreglumanna á hverja 100.000 íbúa næstlægstur á Íslandi í samanburði við 32 Evrópuríki. Staðan í alþjóðlegum samanburði er þess vegna langt frá því að vera góð. Umdæmin á landsbyggðinni eru víðfeðm sem gerir starf lögreglunnar á landsbyggðinni þyngra. Hvernig birtist þetta hjá fólkinu í landinu, t.d. í viðbragðstíma lögreglu sem er víða ábótavant samkvæmt orðum hæstvirts dómsmálaráðherra sjálfrar? 2013 birtist mat ríkislögreglustjóra í sérstakri skýrslu um að 860 lögreglumenn á landinu væru algjör lágmarksþörf. Síðan hefur orðið mikil fólksfjölgun á landinu og fjöldi ferðamanna auðvitað vaxið ævintýralega. Þeir 895 lögreglumenn sem eru starfandi á landinu í dag eru þess vegna víðs fjarri lágmarksþörfinni og það er reyndar svo að til þess að geta talið upp í 895 lögreglumenn þarf að telja með alla ófaglærða og starfandi lögreglunema. Lögreglan hefur sjálf ítrekað á liðnum árum varað við stöðunni.

Þriðja atriðið eru fangelsin. Vilji og niðurstaða dómstóla er ekki virt þegar það gerist að fangelsisdómar fyrnast. Fangelsismálastofnun hefur sagt að vegna vanfjármögnunar hafi ekki verið hægt að boða dæmda menn til afplánunar. Að meðaltali líða tæplega tvö ár frá því að dómur fellur og þar til afplánun hefst. Fangelsismálastofnun sætti niðurskurði samfleytt í 21 ár. Síðasta áratug fyrndist 31 dómur fyrir ofbeldisbrot, fjórir fyrir kynferðisbrot. Það eru óboðleg skilaboð til brotaþola og samfélagsins alls, hefur ekkert með refsigleði að gera heldur það að dómar fái að þjóna tilgangi sínum. Viðreisn hefur margsinnis vakið athygli á löngum málsmeðferðartíma í réttarkerfinu, t.d. að kona sem kærir nauðgun þarf að bíða mánuðum og árum saman þar til endanleg niðurstaða fæst í mál hennar. Ekkert útskýrir þennan langan tíma annað en að of fáar hendur vinna of mörg verk. Kerfið er of fáliðað,“ sagði Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: