„Hvar eru stjórnmálamennirnir sem berjast fyrir hugsjónum? Hvar eru stjórnmálamennirnir sem hafna smánun, slaufun, árásargirni og lýðhyggju?“
Von er að spurt sé. Þessi tilvitnun er fengin úr nýrri Moggagrein eftir Óla Björn Kárason.
Til að gæta allrar sanngirni er Óli Björn ekki að skrifa um félaga sína í þingflokki sjallanna, heldur bandaríska stjórnmálamenn. Greinin hans endar svona:
„Hvar eru kjósendur sem vilja forseta með skýra framtíðarsýn – sem sameinar í stað þess að sundra? Hvers vegna á 340 milljóna þjóð ekki aðra og betri valkosti en Joe Biden og Donald Trump?“
Þú gætir haft áhuga á þessum