Leiðari Moggans er enn og aftur um samgöngusáttmála og borgarlínu. Enn og aftur. Svo virðist sem Sigurður Ingi og Bjarni Ben takist nú á um framhaldið. Öllum að óvöru talaði formaður Framsóknar þvert á það sem formaður Sjálfstæðisflokksins hafði sagt.
„Á óvart kom að ráðherra samgöngumála skyldi lýsa þeirri skoðun í samtali við Morgunblaðið að ekki ætti að hætta við borgarlínuna en á sama tíma segjast sammála fjármálaráðherra um að umfang samgöngusáttmálans sé orðið of mikið miðað við þann tíma sem framkvæmdirnar eiga að taka. Hann vísar til þess að einstök önnur verkefni hafi farið meira úr böndum en borgarlínuverkefnið og það kann að eiga við rök að styðjast, í það minnsta í prósentum talið. En sú framúrkeyrsla réttlætir ekki aðra framúrkeyrslu, þvert á móti. Hvort tveggja sýnir að ráðast þarf í gagngera endurskoðun á sáttmálanum, ekki aðeins að lengja í tímalínunni,“ stendur skrifað í Moggaleiðara dagsins.
Í lok leiðarans er gullkorn dagsins. Sannur húmor.
„Kominn er tími til að hugsað verði í raunhæfum lausnum í samgöngumálum á höfuðborgarsvæðinu. Samgönguráðherra segir að endurskoðun samgöngusáttmálans eigi að liggja fyrir í næsta mánuði. Vonandi verður tíminn notaður til að skoða málin fordóma- og kreddulaust.“
„Fordóma og kreddulaust.“ Þetta er í raun drepfyndið. Fáir eru nú til dags haldnir meiri fordómum og kreddum og einmitt leiðarahöfundur Moggans.
-sme