Sigurjón Þórðarson, varaþingmaður Flokks fólksins, skrifaði:
Það er áhugavert að renna í gegnum stjórnmálaályktun flokksráðsfundar Sjálfstæðisflokksins sem fram fór sl. helgi, en þar er ekki minnst á okurvextirna sem eru að sliga heimilin, bændur og fyrirtækin í landinu.
Það er greinilegt að formaðurinn gælir enn við þann draum sinn að einkavinavæða eina hlið almennings út og inn í landið þ.e. Keflavíkurflugvöll, þrátt fyrir að reynslan t.d. við einkavæðingu Kastrup sé afar slæm.
Það má fastlega búast við að niðurstaða athugunar á vegum Bjarna Ben verði sú að hagstæðast sé að vinirnir í Bankasýslunni selji Keflavíkurflugvöll í lokuðu ferli, til vina og vandamanna að næturlagi.