Kristján Loftsson hefur talað. Eins og við var að búast valdi hann Moggann til þess. Kristján er ósáttur við Svandísi Svavarsdóttur og reyndar líka við Sjálfstæðisflokk sem og Framsóknarflokk. „Það er að mínu mati með ólíkindum að Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn skuli hafa afhent henni matvælaráðuneytið.“
Á forsíðu Moggans segir:
„Þetta kom eins og þruma úr heiðskíru lofti og þarna eru Vinstri grænir að endurskilgreina orðin „meðalhóf í stjórnsýslu“ ef þetta á viðgangast svona áfram. Þeir eru með þessu að prófa sig áfram með það hversu langt þeir geta gengið. Ef þetta heldur áfram svona og þeir verða látnir komast upp með það er voðinn vís fyrir atvinnulífið,“ sagði Kristján Loftsson, framkvæmdastjóri Hvals hf., í samtali við Morgunblaðið. Leitað var viðbragða hans við ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra um að heimila ekki veiðar á langreyðum fyrr en 1. september.
„Það sem hér er á ferðinni er að öfgafullur kommúnisti stjórnar matvælaráðuneytinu og virðist hata allt nema ríkisrekstur. Hún er greinilega að máta sig við nýja stjórnarhætti. Það er að mínu mati með ólíkindum að Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn skuli hafa afhent henni matvælaráðuneytið,“ sagði Kristján.