„Það má kannski vekja athygli á því að stjórnarandstaðan er búin að mæla fyrir 130–140 málum sem eru öll föst inni í nefnd, fullt af þeim málum eru einmitt nákvæmlega á þessum nótum; að bæta kjör almennings. En þau komast ekki úr nefnd,“ sagði Björn Leví Gunnarsson á þingi fyrr í dag.
„Í staðinn á að mæla hérna fyrir enn einum umgangi af málum inn í 1. umræðu frá stjórnarandstöðunni sem koma aftur væntanlega til með að festast inni í nefnd, komast alla vega ekkert út fyrir sumarhlé. Við erum í skrýtinni stöðu hérna þar sem málin koma hingað inn eitt af öðru, festast inni í nefnd, sama einhvern veginn hvað er að finna í þeim málum, hversu mikilvæg þau eru. Ríkisstjórnin virðist ekki hafa neinn áhuga á að afgreiða þjóðþrifamál hérna,“ sagði Björn Leví.