Njáll Trausti Friðbertsson keppist við þessa dagana, eins og lifandi getur. Hann er varaformaður utanríkismálanefndar Alþingis. Bjarni Jónsson, þingmaður Vinstri grænna, er formaður nefndarinnar. Hann hefur verið í Strassborg og á meðan hefur Sjálfstæðisflokkurinn gert hvað allt sem flokksmenn kunna til að keyra mál Þórdísar K.R. Gylfadóttur í gegn á ógnarhraða.
Í frétt Moggans í dag segir: „Kurr er meðal þingmanna í utanríkismálanefnd Alþingis, sem telja að reynt hafi verið að keyra frumvarp utanríkisráðherra vegna bókunar 35 í gegn hraðar en við hæfi sé. Bjarni Jónsson, formaður utanríkismálanefndar, er þar á meðal, en hann segir í samtali við Morgunblaðið að sérstök ástæða sé til þess að gefa sér nægan tíma til.“
Þá liggur það fyrir. Sjálfstæðisflokkurinn lítur á formann nefndarinnar, Bjarna Jónsson, sem hraðahindrun. Bjarni vill fara hægar í málið. Hann vill vanda sig sem mest hann má. Það þolir samstarfsflokkurinn ekki.
„Þetta er mál af stærðargráðu sem þarf vandaða umfjöllun, mál sem vekur spurningar um stjórnarskrármálefni. Þess vegna skiptir miklu máli að leita umsagna víða og kalla fyrir nefndina alla þá gesti sem þurfa þykir, enda ekkert sem bendir til þess að eftir 30 ár liggi núna lífið við,“ segir Bjarni í Moggafréttinni.
Ætli Vinstri græn lúffi ekki fyrir vilja Sjálfstæðisflokksins. Enginn leitar stöðunnar innan Framsóknar.