Ragnar Önundarson skrifaði:
Fákeppni á Norðurlöndunum var til umfjöllunar í fréttum Rúv í kvöld. Fólk nær varla endum saman. Ég hef verið að vekja máls á þessum vanda hér. Sjálftökufólkið í fákeppnisfélögunum hirðir öll þau laun, bónusa og kauprétti sem hugurinn girnist. Neytendur verða að borga.
Frkvstj. Gildis lífeyrissjóðs vekur máls á stjórnlausri forstjóragræðgi, þökkum honum það. Á meðan Róm brann lék Neró á fiðlu. Á meðan sjálftaka og okur brennur á almenningi, kjósendum, rífast alþingismenn. Leitað er að öllum hugsanlegum tilefnum til rifrildis, orkan fer öll í þau.
Þú gætir haft áhuga á þessum