Margfaldir Íslandsmeistarar í eyðslu
„Talandi um efnahagslegt jafnvægi. Það hellast yfir okkur fréttir af bágri stöðu heilbrigðiskerfisins líkt og allt of mörg okkar hafa upplifað á eigin skinni. Stjórnvöld segja meira en nóg af fjármunum fara í kerfið, þeir séu bara illa nýttir. Stjórnarandstaðan segir að kerfið sé fjársvelt. Líklega er hið rétta einhvers staðar þarna á milli. Staðreyndin er hins vegar sú að dugleysi ríkisstjórnarinnar undanfarin ár hefur valdið slíkum skaða á heilbrigðiskerfinu að það er lífsnauðsynlegt að bæta úr til skemmri tíma með fjármunum. Á sama tíma þarf ríkisstjórn sem ræður við að setja skynsamlega stefnu og að innleiða hana skammlaust með lengri tíma markmið í huga,“ segir í nýrri Moggagrein Hönnu Katrínar Friðriksson, þingflokksformanns Viðreisnar.
„Hvaðan eiga þá þessir nauðsynlegu fjármunir að koma? Við erum jú með ríkisstjórn sem á hverju ári slær fyrri útgjaldamet. Margfaldir Íslandsmeistarar í eyðslu. Og samt er þetta staðan. Má þá kannski tala um fílinn í stofunni; þá 50 milljarða plús sem ríkissjóður þarf að greiða á ári í viðbótarvaxtagjöld vegna íslensku krónunnar.
Samtals nema viðbótarkrónuvaxtagjöld sem heimili, fyrirtæki og ríkissjóður greiða tæplega 300 milljörðum króna á ári. Hér undir eru reyndar ekki öll fyrirtæki landsins, mörg þeirra stærstu fá með sérstöku leyfi stjórnvalda að vera undanskilin íslenska krónuhagkerfinu. Þau fá að flýja, við hin erum föst.“
Hanna Katrín bendir einnig á Ingu Sæland og Flokk fólksins.
„Það er stórbrotin sjálfsblekking að segjast tala fyrir hagsmunum heimila og fyrirtækja en hunsa um leið þennan viðbótarvaxtakostnað sem vinnur auðvitað beint gegn hagsmunum almennings. Er í alvöru einhver sem ekki myndi frekar vilja sjá þessa fjármuni renna til dæmis í heilbrigðiskerfið?“