Leiðari Moggans snýr meðal annars að því hversu mikil nauðsyn er að launafólk fái sem minnst við gerð nýrra kjarasamninga. Að venju er leiðarahöfundur afundinn í garð Sólveigar Önnu Jónsdóttur og reynir enn aftur fyrir sér með fimmaurabrandara.
Nú vegna þess að Sólveig Anna er með fjölmenna samninganefnd með sér í samningaviðræðunum. Sólveig Anna stýrir fjölmennu félagi sem gætir hagsmuna síns fólks á mörgum og oft ólíkum stöðum.
Eins er Mogginn upptekinn við hagsmunagæslu eigenda sinna og mun berjast gegn samningum dragi þeir eitthvað úr ofurhagnaði þeirra.
Hér er orðrétt tilvitnun í leiðara Moggans:
„Enn fremur vekur áhyggjur að þeir sem sitja við samningaborðið virðast nálgast samningagerðina án þess að horfa til þess hvernig kaupmáttur hefur þróast á samningstímanum þrátt fyrir efnahagsáfallið sem atvinnulífið mátti þola. Þegar samið er hlýtur að verða að horfa bæði fram og aftur til að meta forsendur hækkana. Hækkun kauptaxta sem étin yrði upp í verðbólgu næstu missera er minna en einskis virði fyrir launamenn. Slíkt höfrungahlaup kaupgjalds og verðlags kom illa við almenning áður fyrr og kostaði tuga prósenta verðbólgu. Samningamenn verða að þekkja söguna betur en svo að þeir vilji endurtaka þann leik.“