„Það er óumdeilt að kvótakerfið okkar hefur sannað gildi sitt þegar kemur að því að vernda fiskistofna Íslands gegn ofveiði og tryggja arðsemi sjávarútvegarins,“ þannig byrjar grein eftir þingflokksformann Viðreisnar, Hönnu Katrínu Friðriksson, sem birt er í Mogganum í dag.
Er þetta rétt? Hafa fiskistofnanir vaxið í kvótakerfinu? Það er bara ekki svo. Ráð væri að Hanna Katrín og aðrir þingmenn kynntu sér hvað var sagt við upphaf kvótakerfisins, fyrir bráðum fjörutíu árum, um hvað fiskistofnarnir myndu stækka hratt og vel.
Nei, yfirlýstu markmiðin með kvótakerfinu hafa ekki gengið eftir. Alls ekki.
Þú gætir haft áhuga á þessum
-sme