Innbrotsþjófur braust inn í kynlífstækjaverslunina Blush við Dalveg í Kópavogi í gær og stal þar „veglegri“ múffu að sögn Gerðar Huld Arinbjarnardóttur eiganda.
„Ég vona að það séu glerbrot í henni þegar hann ætlar heim og nota hana,“ segir hún í færslu á Instragram þar sem hún tjáir sig um innbrotið:
„Morguninn byrjaði ansi leiðinlega. Vonandi verður þetta þess virði fyrir viðkomandi. Ef þið sjáið einstakling, karlmann, labbandi um í Kópavoginum með múffu undir hendinni – frekar veglaga múffu, hann tók stærri gerðina – þá megið þið endilega hringja á lögguna.“
Þú gætir haft áhuga á þessum