- Advertisement -

Sérfræðingarnir segja eldgosið verða á þessum stöðum – „Eld­­gosið í Fagra­­dals­­­fjalli var mjög kurteis við­vörun“

„Eld­­gosið í Fagra­­dals­­­fjalli var mjög kurteis við­vörun, því við vitum að það geta verið öflugri gos á Reykja­nes­­skaga. Þetta gæti orðið stór þáttur í lífi okkar,“ segir Þor­valdur Þórðar­­­son, eld­­­fjalla­­­fræðingur hjá Jarð­­­vísinda­­­stofnun Há­­­skóla Ís­lands, um jarð­hræringarnar á Reykja­nes­­skaga undan­farnar vikur.

Þor­valdur segir að við ættum að undir­­búa okkur undir að eiga við eld­­gos á Reykja­nes­­skaganum ótt og títt næstu ára­tugi. hann og telur að síðasta ­gos hafi verið við­vörun. Þetta er í takt við það sem aðrir sérfræðingar hafa varað við um hættu og alvarleika næsta eldgoss á Reykjanesinu.

Sjá einnig: Páll Einarsson jarðfræðingur: „Næsta gos verður alvarlegri atburður“

Ný gervihnattamynd staðfestir áframhaldandi landris norðvestan Grindavíkur og kvikusöfnun á fjögurra til fimm kílómetra dýpi við fjallið Þorbjörn.

„Landrisið er á fullri ferð núna. Þetta er ekki hratt, sérstaklega. Þetta eru tveir millimetrar á dag. En ef það heldur lengi áfram þá getur þetta orðið að gosi,“ segir Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur. Aðspurður hverja hann telji líklegustu gosstaðina svarar hann:

´ „Mestar goslíkur að mínu mati eru í sprungusveimnum sem liggur út frá þessu svæði, til norðausturs eða til suðvesturs. Hann liggur upp í Vogaheiði til norðausturs, vestur þar. Hann fer þá undir Svartsengi og til norðausturs, undir Arnarseturshraunið og upp í Vogaheiðina,“

Sjá einnig: Björn birtir lista yfir allt sem gæti eyðilagst í gosinu við Svartsengi

Þorvaldur segir skjálfta­­virknina svipa til þeirrar sem var undan­fari eld­­gossins í Fagra­­dals­­­fjalli. Þetta eru líklegustu staðirnir að hans mati.

„Það eru náttúru­­lega mestu líkurnar á að það verði gos í grennd við þar sem skjálfta­­virknin hefur verið hvað mest, á stöðum líkt og Eld­vörpunum, sem eru rétt vestan við Grinda­­vík og í Þor­birni, þar sem landið hefur verið að rísa. Svo er einnig búin að vera skjálfta­­virkni rétt við Sveiflu­hálsinn og við Kleifar­­vatn,“

Kæmi til eldgoss segir Magnús Tumi Guðmundsson jarðfræðingur líklegast að það yrði á þeim slóðum þar sem land rís nú. Á þeim slóðum eru miklir innviðir: raforkuver í Svartsengi, Bláa lónið, Grindavíkurvegur og hitaveitulagnir.

„Þannig getur orðið mikið tjón þó að það yrði ekki mjög stórt gos. Þetta er svona staður þar sem geta orðið miklar skemmdir,“ segir Magnús Tumi.

Sjá einnig: Enn skelfur jörð við Svartsengi – Magnús Tumi: „Staður þar sem geta orðið miklar skemmdir“

Jarðeðlisfræðingurinn Ólafur G. Flóvens, fyrrum forstjóri Íslenskra orkurannsóknar, tekur undir með Magnúsi Tuma. „Það seg­ir manni bara það að það hlýt­ur að vera mik­il hætta á eld­gosi í kring­um Grinda­vík, í Svartsengi og í Eld­vörp­um við nú­ver­andi aðstæður,“ segir Ólaf­ur og bætir því við að hefjist eldgos við Svartsengi yrðu Bláa lónið og orkuverið í Svartsengi í mikilli hættu vegna hraunrennslis. Mestar áhyggjur hafi hann þó af Grindavík.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: